Studio Auður: Innanhússarkitektúr í Reykjavík

InnanhússarkitektúrUpplifunarhönnun
(Um stúdíóið)

Studio Auður er innanhússarkitektastofa þar sem upplifun fólks er höfð að leiðarljósi í gegnum allt hönnunarferlið. Þar er ekki einungis rýmið skoðað, heldur ferðalagið í gegnum það. Útkoman er rými þar sem arkitektúr, efnisval, andrúmsloft og frásögn mynda eina heild.

Línuteikning af fólki á ferð og í sætum á kaffihúsi
(Verkefni)Valin verkefni 2021—2026

(Þjónustan)

  1. Innanhússhönnun

    Skipulag, efnisval, lýsing og smáatriði, frá fyrstu drögum til fullbúins rýmis.

  2. Upplifunarhönnun

    Ferðalag fólks um rýmið er kortlagt og aðstæður mótaðar fyrir þá upplifun sem rýmið á að bjóða.

  3. Þjónustuhönnun & nýsköpun

    Rými og þjónusta er hönnuð saman, svo að rýmið og það sem fram fer í því styðji hvort annað.

  4. Hugmyndavinna

    Aðkoma snemma í ferlinu, áður en verkefnið er fullmótað, til að skilgreina rýmið samhliða þjónustu og notkun.

  5. Skipulag

    Afmörkuð ráðgjöf, til dæmis um efnisval, liti, lýsingu eða uppröðun.

(Hugleiðingar)Allar hugleiðingar